valla völlur
Aðrir bloggarar
Skemtilega fólkið
Hinar síðurnar
Gleðigjafar
01.02.2008 20:56:15 / valli57

Grimmd

Hef aldrei vitað aðra eins grimmd

» 3 hafa sagt sína skoðun

24.11.2005 12:18:27 / valli57

Latur að blogga

Alveg ótrúlega latur að blogga hérna, verð að fara að taka á þessu.

» 1 hafa sagt sína skoðun

15.10.2005 03:28:01 / valli57

Myndir Myndir Myndir

Ef þið viljið sjá myndir þá farið á MSN link hér til vinstri hliðar, undir hinar síðurnar.

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.10.2005 03:26:43 / valli57

Næst síðast næturvakt á Kárahnjúk

Stittist í brottför

Svakalega fallegt veður í gær en um nóttina fór frostið niður fyrir -14°C. Og núna er hitin komin í +5-6°C. 19 gráðu sveifla á innan við sólahring og á víst að fara í +15°C á morgun. Þokkaleg sveifla 30°C.

Fór og plastaði 2 myndir af Davíð Oddsyni, og festi upp á vegg í mötuneytinu á áberandi stöðum, verst að Framsóknarmaðurinn er í fríi Þ.E.A.S sá sem kom út úr skápnum, eflaust einhver í felum enn.

Mér og Jóni kokk finnst þetta fyndi, skítt með það þó öðrum finnist það ekki.

Það var sjónvarpað frá Landsfundi sjálfgræðisflokksins, og það var stemming eins og í jarðaför að sjá, Kim il Davíð talaði og allir horfðu á hann )guð) í tilbeiðslu.

Það var fyndið, dýrkunin á sterka manninum, einræðisherranum.

Siggan min er að gera það gott, er að hætta að reykja eftir 30 ára tott.

Frábært.

Var í hreinskilni, nánast að gefast upp á henni, þoli ekki sjálfsvorkunina í reykingarfólki, það er tilbúið til að drepa börnin sín og alla aðra með óbeinum reykingum til þess eins að þurfa ekki að neita sér um ímyndaða nautn. Get ekki kallað þetta sjálfselsku, því liðið er að fremja hægfara sjálfsmorð á sjálfum sér í leiðini.Reykti sjálfur í 20 ár eins og fífl og veit því hvað þetta er.

Sendi auglýsingu í dagskránna á Egilsstöðum um að öll skotveiði væri bönnuð á Snjóholts jörðini, þetta er mitt land og ég veiði bara sjálfur það sem þar á að veiða. Ætla að hafa friðun á neðri helming jarðarinnar og veiða sjálfur á efri hlutanum, þá sé ég hvort það verður áberandi munur á fuglalýfinu. Auk þess eru rjúpurnar heima við bæin svo gæfar að þær setjast nánast á öxlina á manni, slíkt læt ég ekki drepa.


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.10.2005 04:56:22 / valli57

Lýf á næturvakt

Fékk fína hugmynd í næturmatnum og Erla var til í smá grín, fórum og strengdum filmuplast yfir klósettin á aðalskrifstofuni.Uppi og niðri.

Verður samt leiðinlegt að vera sofandi á morgun þegar einhver fer að nota klósettin, og svona til að skilja engan útundan þá færðum við nokkra stafi til í lyklaborðinu hjá Harald hinum þýska gleðigjafa.

Óli Birgirs ákvað að hrekkja sýna samstarfsmenn í steypueftirliti með því að pakka músinni vel inn og teipa hana.

Líklega lítið um blessunarorð okkur til handa í fyrramálið, en smá grín er gott.

Að sjálfsögðu létum við Desjarárskrifstofuna vera, annað væri játning í beinni, eins og þessi skrif.


» 0 hafa sagt sína skoðun

11.10.2005 05:01:48 / valli57

Biluð eftirtektin

Klukk

Hvað þýðir þegar skrifað er klukk, á ég að klukka næsta bloggara eða bara segja ha.

Virkilega fallegt umhverfið núna, allt hvítt og hitastigið rokkar um 0° C. Verður varla betra. Að vísu slæmt fyrir afköst í fyllingum en gæti verið miklu verra.

Skrítið hvað flestir yfirmenn á staðnum virðast vera værukærir og utan við sig, hér er nokkrir eftirlitsmenn með næstum 16 mánaða staðar reynslu, að hætta um næstu mánaðarmót, ofan á allt sem áður er farið,og engin virðist átta sig á því að eitthvað sé að, fólk hættir og engin kannar kvað er að, eða er kannski bara alveg sama á meðan hellt er í glasið. Skál félagar.

Jæja, skítt með það.

Fékk Suðurverksmenn til að skora á okkar lið í bridge keppni og svo vildu þeir líka keppa í fótbolta á snjóþrúgum, veit ekki með það, en verður fínt að spila bridge.

Þeir eru líka að tala um boðhlaup í sköflum, orðnir örvæntingarfullir um að geta ekki unnið okkur í neinu, eftir margar tilraunir á því sviði.

Væri samt gaman að sjá fótbolta spilaðan á snjóþrúgum.

Best að senda þetta á starfsmanna línuna um leið og pósturinn fer að virka aftur.

Heyrði í Magneu Huld hinni mögnuðu í Ameríku á msn, sakna þess að hafa hana ekki þusandi hér í næsta herbergi, þusið var eins og vinalegur lækjarniður sem nánast svæfði mann, :cry: Sakna hennar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

07.10.2005 04:38:28 / valli57

Næturvakt 1 af 11

Kominn á Kárahnjúka til að skila síðustu næturvakta röðinni, og langt komin með fyrstu af 11.

Alltaf betra að flokka myndir og fara yfir verkefni á næturvöktum, fátt sem truflar.

Verð að fara að læra að setja inn tengla og myndir á þetta blogg, hálf litlaust án mynda. Æ geri það seinna.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.09.2005 17:47:38 / valli57

Flensa

Búin að vera aumingi í nokkra daga og með takmarkaða starfsemi í heila stað. Merkilegt hvað smá flensa getur gert mann linan og afkastalausan.

Fer niður til byggða á morgun svo þetta fer að klárast.

Hef greinilega ekki skrifað línu hér í 2 vikur, merkilegt hvað tíminn er fljótur að líða.

Hef það á tilfinninguni að ég sé rispuð vinil plata, er búin að skrifa orðið merkilegt núna þrisvar.

Merkilegt.

Veðrið yndislegt, rok skafrenningur og frost. Impregilo menn búnir að skríða upp í koju og undir sæng, en Suðurverksmenn láta sem ekkert sé og vinna sýna vinnu. Dettur engum í hug að hætta að vinna þó það skafi aðeins, enda er þetta okkar heimasvæði.


» 0 hafa sagt sína skoðun

16.09.2005 04:21:47 / valli57

Síðasta næturvaktin í September

Orðin endanlega rugludallur, fór á Seyðisfjörð eftir næturvaktina, til að sitja fræðslufund um ferjuslysaæfingu sem verður haldin 18 eða 19 Nóvember 2005.

Var komin aftur upp á Kárahnjúka rétt fyrir 19:00. Mættur tímanlega fyrir næturvaktina.

Verð að hætta þessum 36 tíma vöktum, stalst að vísu til að skoða augnlokin að innanverðu smá stund en kallar á mínum aldri eiga að vinna frá 9-5.

Annað hvort koðnar maður niður hér á Kárahnjúk eða leggur eitthvað smávegis á sig og lætur eitthvað gerast.

Búin að búa til fótboltavöll, fara nokkrar ferðir til byggða á milli vakta og sitt lítið af hvoru.

Á samt eftir flugbrautina og hestaferðina ásamt refaveiði, verð samt að passa að skjóta ekki heimilishundin okkar hann Mikka ref, veit hvar hann fer um og hvenær svo það ætti ekki að verða mikið mál að forða honum.

Væri kannski ekki svo vitlaust að koma á hann ól eða merkingu eins og aðrir heimilishundar fá.

Og þó, kominn 16 Sept og þar sem ég hætti 31 Okt, tekur varla að fara að gera annað en fara í langa göngutúra á refaslóðir og skoða lónsbotnin sem hverfur.


» 1 hafa sagt sína skoðun

14.09.2005 03:47:01 / valli57

Eftirköst

Ekki mikið um snöggar hreifingar og garpa tilburði í dag né næstu daga, er með alla vöðva stífa og hrikalega stirðan skrokk.

Ekki verið í jafn góðu formi og ég hélt, ligg greinilega undir skemmdum hérna, fátt við að vera nema fara í mötuneytið, það er greinilega að segja til sýn, góða fæðið.

Best að hundskast út að afkastamæla verktakan og fylgjast með.

Cilla er hörkutól í eftirliti með grautun, þræl dugleg, bráð gáfuð og líka falleg. Ekkert lík Svenna uber stress eða Óla panick.

Og er samt alveg að skila sýnu í vinnu og jafnvel gott betur.


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.09.2005 03:22:57 / valli57

Veiðiferð á hreindýr

Þetta er skemmtileg bilun

Fór á veiðar með úrvals manni sem kann að veiða, hann rétt drap mig með því að láta mig hlaupa sem óðan um móa og gilskorninga ásamt árbökkum, ávallt hálfbogin með hólkin í hendini,við stoppuðum öðru hverju ef við vorum sjáanlegir frá hjörðini og litum þangað til að fylgjast með því hvort fylgst væri með okkur, ef það var gert,stóðum við kjurir uns af okkur var litið og héldum þá áfram. Og svo var skriðið á hnjánum í urðini og á frosini jörð uns við mjökuðum okkur loks á maganum í færi við bráðina.

Þá var dýrið valið og kúlan send, hjörðin leit öll upp og færði sig um meter eða svo, en fór svo bara aftur að bíta en skotið dýrið skjögraði um, lagðist fljótlega og sofnaði.

Gat ekki sent aðra kúlu af stað til að flíta fyrir dauðanum, því hjörðin hélt sig í bakgrunn og áhættan var of mikil á að særa önnur dýr, fannst kýrin lengi að sofna en manni finnst tímin lengi að lýða við þessar aðstæður og vill ekki að dýrið kveljist, heldur falli fljótt og kvalarlaust.

Loks fór hjörðin og hægt var að fara að kúnni og opna hálsæðarnar, því næst er barkin rifin úr og bundið fyrir magaopið til að hindra að gorin færi í kjötið, kviðurinn er ristur upp og ég fór inn í heitt dýrið, upp að öxlum, til að rífa út inniflin og hreinsa skrokkin að innan.

Fór svo að næsta poll og braut þar ísinn til að geta þvegið af mér mesta blóðið, kaldur en hressandi þvottur.

Þá var bráðin sett í plast, eftir að búið er að snúa upp á hausin og brjóta hálsliðin með smell, til að skera hausin af og öllu var svo komið upp í bílinn, mér ekið heim og dýrinu skutlað inn í vaskahús. Ég var töluverðan tíma að flá skinnið af og hreinsa skrokkin, en tókst að skera af lærin, brjóta hryggsúluna og ná hrygg og lundum, skera og brjóta lappirnar af ásamt því að pakka öllu niður í frystikistuna áður en ég rauk upp eftir til að mæta á næturvakt.

Var með lengri næturvöktum sem ég hef tekið hér á Kárahnjúkum.

Og hverjum finnst svo einhver rómantík við veiðiferðir, við erum bara villidýr og alveg eins gott og jafnvel heiðarlegra, að drepa sjálfur það sem maður étur, frekar en að láta aðra gera það fyrir mann, og sitja svo og fordæma "villimennina" sem drepa aumingja bamba litla og Rúdólf líka


» 0 hafa sagt sína skoðun

12.09.2005 02:20:08 / valli57

Allt að gerast

Merkileg næturvakt í gær, kviknaði í búðum Impregilo(meyjarskemmuni) og Pólverji á trukk var næstum komin í Jöklu.

Heppin kallinn að missa ekki trukkin í ánna, hefði líklega verið síðasta ökuferðin hans.

Merkilegt hvað svona atburðir koma í gusum, annað hvort ekkert eða allt.

Verður löng vakt, fer á eftir til að sækja hreindýrin mín og svo þarf að flá og vinna skrokkana. Tekur líklega allan daginn og svo kemur næsta næturvakt í framhaldi ásamt fyrirhuguðum fund, þar á eftir.

Verð bara að sofa um næstu helgi. 8|


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2005 05:38:31 / valli57

Andvarp

Og þar með lauk frí dögum.

Hin mikli veiðimaður skaut ekki skoti allan tíman, er komin með tímasetningar og venjur gæsana á hreint, búin að finna staði 3 sem henta fyrir bæði morgun og kvöldflug, en ekkert skeður, enda lokið þeim tíma sem var til staðar í málið.

Verð að snúa mér að hreindýrinu í næsta vaktfríi, líklega engin gæs í lýfshættu mín vegna, þessar tvær í kistuni verða bara að duga þá.

Best að pakka niður fyrir vistina á Kárahnjúkum, stittist smá saman útlegðin, stittist.


» 1 hafa sagt sína skoðun

19.08.2005 08:54:30 / valli57

Græðgi

Virðist vera komin örvænting í allt góðærið á Austurlandi. Menn farnir að tala góðærið upp og bankarnir reyna að reikna allan væntanlega gróðan á sama tíma og nýjar tómar íbúðir standa út um allt. Menn auglýsa svo að allt sé selt, en geta þess ekki að fasteignarheildsali tók pakkan, og svo eru sömu menn að selja aftur íbúðirnar sem þeir auglýstu seldar áður.

Alveg met hvað sumir menn álíta sig mikla snillinga, og halda sig geta blekkt alla hina. Grátbroslegt.

Fór til Maríu og Bjartmars með hleðslutæki, jeppalingurin eitthað að stríða Bjartmari og að verða dintóttur.

Fór til Unu og hjálpaði Pabba hennar aðeins við húsbyggingar hann er ótrúlega seigur karlinn að vera komin á þennan aldur og vera að byggja bjálka skýli, margur yngri hefði gefist upp.

Var eitthvað að bægslast á Snjóholti að reyna að færa til sitt lítið að hverju, betra að gera lítið en ekkert.


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.08.2005 04:48:02 / valli57

Komin heim í (frí)

Komin heim á Hérað,

Ætlaði að vera voða duglegur en sofnaði á miðjum degi, þessi breiting frá næturvakt yfir á dagvakt og svo öfugt, eyðileggur öll frí. Hef ekki heyrt neinn vaktfélaga segja neitt annað, ættum að fá launa eða frí uppbót fyrir þetta.

En skítt með það, æðislegt að vera innan um fólk og aðrar lifandi verur, hér er gróður og hægt að gera eitthvað, hafa samskipti, án þess að sulla í víni og leiðindum.

Best að fara inn á Snjóholt og reyna að gera gagn, hef verkefni þar næstu árin.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2